133. löggjafarþing — 22. fundur,  7. nóv. 2006.

tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Að loknum atkvæðagreiðslum um fjögur fyrstu dagskrármálin fer fram umræða utan dagskrár um fjölgun útlendinga á Íslandi. Málshefjandi er hv. þm. Magnús Þór Hafsteinsson. Hæstv. félagsmálaráðherra Magnús Stefánsson verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.