133. löggjafarþing — 50. fundur, 9. des. 2006.
þingfrestun.
Þá er komið að lokum síðasta fundar Alþingis fyrir jólahlé. Ég færi alþingismönnum öllum, svo og starfsfólki Alþingis, þakkir mínar fyrir gott samstarf á haustþinginu og óska öllum gleðilegrar og friðsællar jólahátíðar og þakka samstarfið á því ári sem nú er brátt á enda.
Þeim sem eiga um langan veg heim að fara óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið þess að við megum öll hittast heil á nýju ári. Landsmönnum öllum sendi ég mínar bestu jóla- og nýársóskir.