133. löggjafarþing — 87. fundur, 13. mars 2007.
tilkynning um dagskrá.
Forseti tilkynnir að um kl. 1.30, að loknu hádegishléi, fer fram umræða utan dagskrár um áform um breytt rekstrarform Iðnskólans í Reykjavík. Málshefjandi er hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir. Hæstv. menntamálaráðherra, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.