133. löggjafarþing — 93. fundur,  17. mars 2007.

varamaður tekur þingsæti.

[09:39]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Borist hefur svohljóðandi bréf um forföll þingmanns frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar, Össuri Skarphéðinssyni, dagsett í dag, 17. mars:

„Þar sem Katrín Júlíusdóttir, 7. þm. Suðvest., er veik og getur ekki sótt þingfundi óska ég eftir því, með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, Jón Kr. Óskarsson, taki sæti hennar á Alþingi á meðan.“

Jón Kr. Óskarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.