136. löggjafarþing — 22. fundur,  10. nóv. 2008.

tilkynning um dagskrá.

[15:04]
Horfa

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Um klukkan hálffjögur í dag, að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, fer fram utandagskrárumræða um þorskeldi. Málshefjandi er hv. þm. Karl V. Matthíasson. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Einar K. Guðfinnsson, verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 2. mgr. 50. gr þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.