136. löggjafarþing — 35. fundur,  25. nóv. 2008.

skilmálar við frystingu lána.

[14:16]
Horfa

forsætisráðherra (Geir H. Haarde) (S):

Herra forseti. Ég viðurkenni að ég þekki ekki nákvæmlega framkvæmd í þessum efnum í einstökum bönkum. Hún kann hugsanlega að vera eitthvað breytileg. En ef þarna eru einhver frávik frá því sem tilgreinir í tilmælum ríkisstjórnarinnar er alveg sjálfsagt að ákveða það og sumt af því sem hv. þingmaður nefndi hljómar ankannalega.