138. löggjafarþing — 11. fundur,  20. okt. 2009.

tilkynning um dagskrá.

[13:32]
Horfa

Forseti (Steinunn Valdís Óskarsdóttir):

Um klukkan 2 í dag, að loknum dagskrárliðnum Störf þingsins, fer fram umræða utan dagskrár um fjárhagsstöðu Landsvirkjunar og framtíðarhorfur. Málshefjandi er hv. þm. Vigdís Hauksdóttir. Fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.