139. löggjafarþing — 138. fundur, 31. maí 2011.
stjórn fiskveiða.
826. mál
Í ljósi þess að klukkan er hálftólf mun forseti ekki gera tilraun til þess að ná í hæstv. fjármálaráðherra (Gripið fram í: Nú?) heldur flytja honum óskir þingmanna um að hann verði viðstaddur umræðuna. Forseti tekur til greina þá beiðni sem fram kom frá hv. þm. Sigurði Kára Kristjánssyni.