141. löggjafarþing — 32. fundur,  8. nóv. 2012.

fjáraukalög 2012.

153. mál
[15:08]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nei, ég hef ekki fundið neitt um hana þar. Það er helst eitthvað að finna um hana á netmiðlum dagblaðanna í dag í umfjöllun þeirra um blaðamannafundinn í morgun. Þar var þetta kynnt ítarlega fyrir blaðamönnum. Það er mögulegt að þeir hafi nánari upplýsingar um fjárfestingaráætlunina, en í fjárlögum eða fjáraukalögum hef ég ekki séð hana.