141. löggjafarþing — 33. fundur,  13. nóv. 2012.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefnda.

[13:36]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Með bréfum, dags. 8. nóvember sl., hefur forseti annars vegar óskað eftir því við fjárlaganefnd, samanber ákvæði 2. mgr. 5. töluliðar 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga frá janúar til júní 2012 og hins vegar hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 1. mgr. 8. töluliðar 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um bótauppgjör til starfsmanna utanríkisráðuneytisins vegna tjóns á búslóð í apríl 2011.