141. löggjafarþing — 33. fundur,  13. nóv. 2012.

íþróttalög.

111. mál
[15:05]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Björgvin G. Sigurðsson) (Sf):

Frú forseti. Ég geri hér grein fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á íþróttalögum með síðari breytingum og lýtur að lyfjaeftirliti í íþróttum.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund nokkurn fjölda gesta, m.a. Agnesi Guðjónsdóttur og Óskar Þór Ármannsson frá mennta- og menningarmálaráðuneyti og Örvar Ólafsson, Skúla Skúlason og Lárus Blöndal frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands. Þá bárust umsagnir frá Frjálsíþróttasambandi Íslands, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands og Landssambandi hestamanna.

Með frumvarpinu er lagt til að alþjóðaskuldbindingar ríkisins á sviði lyfjaeftirlits í íþróttum verði lögfestar en íslenska ríkið er aðili að samningi Evrópuráðsins gegn misnotkun lyfja í íþróttum frá árinu 1989, ásamt viðbótarbókun frá árinu 2003, Kaupmannahafnaryfirlýsingunni frá árinu 2003 og UNESCO-lyfjaeftirlitssamningnum frá árinu 2005.

Nefndin tekur heils hugar og óskipt undir mikilvægi þess að stuðla að framþróun í baráttunni við lyfjamisnotkun hér á landi sem er talið að hafi farið vaxandi hér eins og víðast annars staðar. Nefndin áréttar að ekki er verið að setja á fót sjálfstæða stofnun, heldur er með frumvarpinu lagt til að ráðherra geti falið þar til bærum aðila framkvæmd lyfjaeftirlits í íþróttum með þjónustusamningi. Fjölluðum við töluvert um þetta atriði málsins í nefndinni og var einhugur um að það fyrirkomulag væri miklu heppilegra og skilvirkara til öflugs og skilvirks lyfjaeftirlits en það að setja á fót sjálfstæða stofnun.

Við meðferð málsins í nefndinni var nokkuð rætt um mikilvægi þess að auknar fjárheimildir fylgi lagabreytingunni. Nefndin telur einsýnt að ef eigi að nást það markmið að uppfylla alþjóðaskuldbindingar á sviði lyfjaeftirlits verði að fylgja því aukið fjármagn. Nefndin tekur undir álit fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins en þar kemur fram að um 11,8 millj. kr. eigi að renna til lyfjaeftirlits á árinu 2013. Komi til frekari útgjalda verður að gera ráð fyrir að mennta- og menningarmálaráðuneytið nýti til þess fjárheimildir af öðrum verkefnum.

Samkvæmt 2. gr. frumvarpsins eiga lögin að taka gildi 1. janúar 2013. Það er mat nefndarinnar að nauðsynlegt sé að framkvæmd lyfjaeftirlits og fræðslu sé tryggð með öruggum hætti. Af þeim sökum telur nefndin rétt að fresta gildistöku laganna og leggur til breytingu þar að lútandi. Einnig leggur nefndin til lítils háttar orðalagsbreytingar en leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

1. Við 1. gr.

a. B-liður 2. efnismgr. orðist svo: málsmeðferð við lyfjaeftirlit og þau verkefni sem ríkissjóður greiðir fyrir.

b. Á eftir orðinu „lyfjaeftirlits“ í 3. efnismgr. komi: með samningi.

2. 2. gr. orðist svo:

Lög þessi öðlast gildi 1. mars 2013.

Þannig frestum við gildistökunni um tvo mánuði til að hægt sé að undirbúa eftirlitið betur og það geti gengið vel og snurðulaust fyrir sig þegar þar að kemur.

Hv. þingmenn Sigmundur Ernir Rúnarsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Birgitta Jónsdóttir og Tryggvi Þór Herbertsson voru fjarverandi við afgreiðsluna 5. nóvember 2012. Undir nefndarálitið rita Björgvin G. Sigurðsson formaður, Skúli Helgason, Þráinn Bertelsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir og Siv Friðleifsdóttir.