141. löggjafarþing — 42. fundur,  29. nóv. 2012.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefnda.

[10:34]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Með bréfi, dags. 22. nóvember sl., hefur forseti óskað eftir því við fjárlaganefnd, samanber ákvæði 2. málsliðar 5. töluliðar 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings 2011.

Með bréfi, dags. 27. nóvember sl., hefur forseti óskað eftir því við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um rekstur og starfsemi dvalarheimila aldraðra.