141. löggjafarþing — 80. fundur, 13. feb. 2013.
lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þá tillögu forseta? (Gripið fram í: Já.) Óskað er eftir atkvæðagreiðslu um þá tillögu forseta. Hún mun fara fram að loknum umræðum um störf þingsins.