141. löggjafarþing — 84. fundur, 20. feb. 2013.
útgáfa og meðferð rafeyris.
216. mál
Virðulegur forseti. Þetta mál hefur fengið sína efnislegu meðferð við 2. umr. málsins en ég vil gera grein fyrir breytingartillögu sem kemur fram við 3. umr. á þskj. 1039 og felur í sér leiðréttingar og breytingar sem af þeim leiða, af tilvísunum innan frumvarpsins í einum fimm liðum sem hv. þingmenn geta kynnt sér.
Nefndin leggur til að að samþykktri breytingartillögunni verði frumvarpið samþykkt.