141. löggjafarþing — 97. fundur,  11. mars 2013.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

651. mál
[15:01]
Horfa

Róbert Marshall (U):

Virðulegur forseti. Rannsóknarskýrsla Alþingis leiddi í ljós að ein af ástæðum hrunsins var veikleiki flokkakerfisins. Sá veikleiki og þeir brestir hafa afhjúpast okkur allt það kjörtímabil sem nú er senn á enda. Afhjúpast hér í þessari umræðu, afhjúpast í þeirri aðferðafræði sem liggur að baki tillögunni sem hér er til umfjöllunar. Ég segi nei.