141. löggjafarþing — 103. fundur,  14. mars 2013.

lengd þingfundar.

[10:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta? — Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta. Sú atkvæðagreiðsla fer fram að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma, kl. 11 í dag.