141. löggjafarþing — 104. fundur,  15. mars 2013.

lengd þingfundar.

[10:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að fundurinn geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. — Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta og mun hún fara fram að loknum liðnum um störf þingsins upp úr kl. 11 í dag.