141. löggjafarþing — 106. fundur,  18. mars 2013.

beiðni um tvöfaldan ræðutíma.

[10:01]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseta hefur borist bréf frá Gunnari Braga Sveinssyni, þingflokksformanni Framsóknarflokksins, um að þingflokkurinn óski eftir því að ræðutími við 2. umr. þingmáls 641, stjórnarskipunarlög, verði tvöfaldaður, samanber 4. mgr. 67. gr. þingskapa, vegna mikilvægis málsins. Mun því ræðutími verða tvöfaldaður við 2. umr. þingmálsins.