142. löggjafarþing — 1. fundur, 6. júní 2013.
drengskaparheit unnin.
Samkvæmt 2. gr. þingskapa ber þeim alþingismönnum sem nú taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni. Af hinum 27 nýkjörnu alþingismönnum hafa tveir áður setið á Alþingi sem varaþingmenn, einn hinna nýkjörnu þingmanna er ekki viðstaddur svo að 24 nýir þingmenn munu undirrita drengskaparheit á þessum fundi.
[24 þingmenn undirrituðu drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.]