142. löggjafarþing — 1. fundur, 6. júní 2013.
afbrigði um sætahlutun.
Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. frá lokamálsgrein 3. gr. þingskapa um að hluta skuli um sæti. Samkomulag er um að formenn þingflokka hafi sæti næst inngangi í salnum og dragi innbyrðis um þau sæti. Skoðast þau afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.
Sæti þingflokksformanna eru því þessi: Svandís Svavarsdóttir sæti 7, Ragnheiður Ríkharðsdóttir sæti 8, Birgitta Jónsdóttir sæti 22, Helgi Hjörvar sæti 23, Sigrún Magnúsdóttir sæti 44 og Róbert Marshall sæti 45.