142. löggjafarþing — 13. fundur, 25. júní 2013.
stjórn fiskveiða o.fl.
4. mál
Virðulegi forseti. Ég fagna þessu framfaraspori. Þetta mun verða til þess að auka öryggi smábátasjómanna. Þetta mun bæta meðferð á afla og þetta mun að auki tryggja það að krókaaflamarkskerfið verði áfram. Það er markmið nefndarinnar þannig að við erum öll sammála um það. Ég fagna því.