vísun skýrslu nefndar um rannsókn á Íbúðalánasjóði til nefndar.
Fyrir stundu barst forseta Alþingis skýrsla nefndar um rannsókn á Íbúðalánasjóði. Af því tilefni ritaði forseti Alþingis svofellt bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar:
„Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Hr. Brynjar Níelsson, 1. varaformaður.
Reykjavík, 2. júlí 2013.
Nefnd um rannsókn á Íbúðalánasjóði sem til var stofnað í kjölfar þingsályktunar Alþingis 17. desember 2010 hefur lokið störfum sínum og afhent forseta Alþingis skýrslu nefndarinnar. Eins og 13. gr. laga um rannsóknarnefndir Alþingis kveður á um ber stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis að taka skýrsluna til umfjöllunar. Jafnframt er það tillaga forseta að á morgun, miðvikudaginn 3. júlí, fari fram sérstök umræða á Alþingi um skýrslu nefndarinnar.“
Undir þetta ritar 1. varaforseti Alþingis, Kristján L. Möller.