143. löggjafarþing — 14. fundur, 1. nóv. 2013.
verslanaskrár, firmu og prókúruumboð, sameignarfélög og fyrirtækjaskrá.
132. mál
Virðulegur forseti. Ég vil bara bæta aðeins við að það sem gerir þetta mál kannski líka óvenjulegt er að iðnaðar- og viðskiptaráðherra flytur þetta frumvarp en fjárveitingin til fyrirtækjaskrár er á hendi fjármálaráðherra. Ég fullvissa því hv. þingmann um að það verður og hefur verið unnið í góðu samstarfi við fjármálaráðuneytið sem fer með fjárveitinguna til þessa verkefnis.