143. löggjafarþing — 49. fundur, 14. jan. 2014.
vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefnda.
Forseti vill tilkynna að með bréfum, dagsettum 10. janúar sl., hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, annars vegar við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Ferðamálastofu og hins vegar við fjárlaganefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga janúar til september 2013.