143. löggjafarþing — 64. fundur,  18. feb. 2014.

fjármálafyrirtæki.

274. mál
[14:23]
Horfa

Frsm. efh.- og viðskn. (Ragnheiður Ríkharðsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér nefndarálit um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, með síðari breytingum, um framlengingu bráðabirgðaákvæðis.

Nefndin hefur fjallað um málið. Á fund hennar komu fulltrúar frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Umsagnir bárust frá Alþýðusambandi Íslands, Samtökum fjármálafyrirtækja og Samtökum atvinnulífsins.

Með frumvarpinu er lagt til að gildistími ákvæðis til bráðabirgða VI í lögum um fjármálafyrirtæki, sem féll úr gildi 31. desember sl., verði framlengdur til 31. desember 2015.

Forsaga málsins er sú að bráðabirgðaákvæðið kom upphaflega fram í lögum nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., þ.e. svokölluðum neyðarlögum. Ákvæðið veitir Fjármálaeftirlitinu heimild til þess að grípa til sérstakra ráðstafana til þess að takmarka tjón eða hættu á tjóni á fjármálamarkaði. Gildistími ákvæðisins hefur áður verið framlengdur í tvígang. Í kjölfar úttektar á innlendu regluverki á fjármálamarkaði árið 2011, tveggja skýrslna sem lagðar voru fyrir Alþingi, annars vegar um framtíðarskipan fjármálakerfisins og hins vegar um heildarumgjörð um fjármálastöðugleika á Íslandi, voru skipaðar nefndir til að vinna eftir tillögum skýrsluhöfunda. Ein nefndin yfirfór tillögur um breytingar á skilameðferð fjármálafyrirtækja og lagði til breytingar sem hún taldi nauðsynlegar. Við verkið hafði hún til hliðsjónar drög að tilskipun sem er í smíðum hjá Evrópusambandinu um skilameðferð fjármálafyrirtækja.

Unnið er að frumvarpi til heildarlaga um skilameðferð fjármálafyrirtækja í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Sú vinna hefur dregist vegna seinkunar sem hefur orðið á smíði tilskipunar Evrópusambandsins um skilameðferð fjármálafyrirtækja. Seinkunina má helst rekja til ágreinings sem komið hefur upp innan Evrópusambandsins og varðar nokkra þætti tilskipunarinnar.

Á fundi nefndarinnar kom fram að þar sem gert væri ráð fyrir að leggja fram nýtt frumvarp til heildarlaga um skilameðferð fjármálafyrirtækja á næsta löggjafarþingi — og það er bagalegt að þetta bráðabirgðaákvæði skuli ekki hafa verið framlengd fyrir 31. desember — væri framlenging gildistíma ákvæðisins nauðsynleg af þeim sökum, enda hefði vinna við frumvarpið tafist nokkuð.

Nefndin telur að í ljósi þeirrar seinkunar sem hefur orðið á framlagningu frumvarps til heildarlaga um skilameðferð fjármálafyrirtækja sé eðlilegt og nauðsynlegt að ákvæði frumvarpsins fái lagagildi. Tekið skal fram að efni ákvæðisins er óbreytt frá þeirri útgáfu er síðast var í gildi. Nefndin tekur fram að hún telur að málið hefði þurft koma fram þegar á haustþingi, eins og framsögumaður sagði hér að framan.

Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Hv. þm. Guðmundur Steingrímsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Þeir sem skrifa undir nefndarálitið eru hv. þingmenn Frosti Sigurjónsson, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Pétur H. Blöndal, Willum Þór Þórsson, Árni Páll Árnason, Líneik Anna Sævarsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Vilhjálmur Bjarnason.