143. löggjafarþing — 67. fundur, 24. feb. 2014.
lengd þingfundar.
Herra forseti. Þingsályktunartillaga sem liggur fyrir þinginu um að draga til baka og slíta umsókn okkar um aðild að Evrópusambandinu er einhver sú hin óþarfasta sem hefur rekið á fjörur þingsins í lýðveldissögunni. Fyrr skal ég dauður liggja en að ég greiði för hennar í gegnum þingið.
Ég segi nei. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)