144. löggjafarþing — 25. fundur,  3. nóv. 2014.

orð forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.

[15:38]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég get ekki annað en kvatt mér hljóðs. Þetta er í annað sinn sem þingflokksformaður Samfylkingarinnar á orðastað við hæstv. forsætisráðherra og hæstv. forsætisráðherra kemst upp með það án ávirðinga af hálfu hæstv. forseta að væna þingmanninn um lygar. Hv. þingmaður fór mjög ítarlega yfir það í fréttatilkynningu eftir síðasta fyrirspurnatíma að hann hafði ekki rangt fyrir sér.

Hann var að ósekju ásakaður um lygar.

Nú gerist þetta öðru sinni og ég ætlast til þess að hæstv. forseti láti ekki hæstv. forsætisráðherra komast upp með það í þessum þingsal að ásaka þingmenn tilhæfulaust um lygar.