144. löggjafarþing — 108. fundur,  19. maí 2015.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[23:24]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég vil bara beina þeirri ósk til hæstv. forseta að ígrunda mjög vel dagskrá morgundagsins í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin og biðja um að dagskráin verði sett saman í samráði þingflokksformanna til að skapa hér betri starfsfrið í þinginu og ekki síst í ljósi þeirra upplýsinga sem fram hafa komið nú undir lok umræðunnar í kvöld.