144. löggjafarþing — 116. fundur,  1. júní 2015.

fundur forseta með formönnum þingflokka.

[15:08]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Nú háttar svo til um þá dagskrá sem fyrir þessum fundi liggur að menn hafa ekki náð að setjast niður og fara yfir stöðuna eins og hún er. Því miður líður hver helgin á fætur annarri og þingfundarhlé án þess að menn reyni eftir fremsta megni að ræða saman og komast að einhverri lendingu.

Ég fagna því auðvitað að formenn flokkanna ætla að hittast í dag en mér þætti eðlilegt að gefið yrði ráðrúm bæði meðan á þeim fundi stendur og auðvitað eftir fundinn til að þingflokkar og þingflokksformenn geti farið yfir stöðuna og ákveðið næstu skref.