145. löggjafarþing — 4. fundur,  11. sept. 2015.

fjárlög 2016.

1. mál
[13:41]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég ætlaði að láta mér nægja að koma hingað upp einu sinni en ég varð að koma aftur. Hvað er það sem ráðherrann eða ráðuneytið ætlar að fá fyrir þessar 32 milljónir sem á að verja til Brussel? Að hverju á að starfa? Hvað er þetta margt fólk? Hvað ætlum við að fá fyrir þessar 32 milljónir?