145. löggjafarþing — 42. fundur,  27. nóv. 2015.

opinber fjármál.

148. mál
[11:38]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég fagna því að við séum að fara að greiða atkvæði um þetta frumvarp. Við teljum það til mikilla bóta og löngu tímabært. Við erum á nefndaráliti með meiri hlutanum og munum greiða atkvæði með öllum greinum.