145. löggjafarþing — 62. fundur,  19. des. 2015.

þingfrestun.

[19:05]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 145. löggjafarþings, frá 19. desember 2015 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 19. janúar 2016.

Gjört á Bessastöðum, 18. desember 2015.

Ólafur Ragnar Grímsson.

__________________________

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Bréf forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

 

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 145. löggjafarþings, er frestað.

Ég þakka hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir þau störf sem vel voru unnin fyrri part vetrar og óska þeim, fjölskyldum þeirra og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.