145. löggjafarþing — 110. fundur, 12. maí 2016.
almennar íbúðir.
435. mál
Hæstv. forseti. Eins og ég sagði áðan er unnið að tillögum er varða verðtrygginguna í ráðherranefnd. Það hefur tekið gríðarlega langan tíma. Vandað er til verks. Framsóknarflokkurinn hefur ekki svikið neitt í þeim efnum. Markmiðin eru mjög skýr, unnið er að málefnum verðtryggingarinnar í ráðherranefnd og þess beðið að þau komi fram í þinginu.