146. löggjafarþing — 2. fundur,  7. des. 2016.

fjárlög 2017.

1. mál
[15:29]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Það eru sannarlega framandi aðstæður á Alþingi nú þegar þing er sett án þess að ríkisstjórn hafi verið mynduð og þingmenn ræða fjárlagafrumvarp án þess að vita hvernig sá meiri hluti mun líta út sem mögulega gæti samþykkt það, eða hver sá hugsanlegi meiri hluti yrði sem kemur sér saman um breytingartillögur við frumvarpið.

Hún er líka framandi nýja framsetningin á fjárlagafrumvarpinu sem hv. þingmenn fengu aðeins tæpan sólarhring til að kynna sér áður en umræðan um það hófst. Í fyrsta sinn er framsetningin í samræmi við lög um opinber fjármál.

En fjárlagafrumvarpið er hvorki hlutlaust né eitthvert embættismannafrumvarp eins og einhverjir hafa viljað halda fram. Frumvarpið er unnið eftir fjármálastefnu og fjármálaáætlun ríkisstjórnar sem missti meiri hluta sinn í síðustu kosningum. Fjárlagafrumvarpið er því pólitískt plagg byggt á stefnu ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins.

Frá hruni haustið 2008 höfum við lagt mikið á okkur til að vinna að efnahagslegum stöðugleika og fyrir stöðugleikann skiptir öllu máli að ríkisfjármálastefna stjórnvalda og peningamálastefna Seðlabanka Íslands vinni saman að því að draga úr hagsveiflum, togi vagninn í sömu átt.

Seðlabankinn benti á, í sinni umsögn um fjármálastefnuna, sem bankinn sendi fjárlaganefnd 21. maí sl., að ef ekki sé talið álitlegt að draga úr fjárfestingum opinberra aðila þurfi að draga úr öðrum útgjöldum eða afla hinu opinbera aukinna tekna, t.d. með hærri sköttum.

Það var ljóst fyrir samþykkt Alþingis í lok maí að veikleikar fjármálastefnunnar og fjármálaáætlunarinnar væru á tekjuhliðinni og tilkomnir vegna þess að ríkisstjórnin hafði lækkað ýmsa skatta og gjöld á kjörtímabilinu. Veiðigjöld voru lækkuð umtalsvert, auðlegðarskattur afnuminn og orkuskattur líka, dregið var úr jöfnunarhlutverki tekjuskattskerfisins og ferðamönnum gefinn afsláttur af virðisaukaskatti. Þá var sérstakur bankaskattur innheimtur sem gekk þó beint til lánastofnana til að niðurgreiða verðtryggð húsnæðislán, að vísu bara sumra heimila, mest þó hjá efnamestu skuldurunum. Það var gert á sama tíma og fjárfestingarþörf er mikil í samgöngukerfinu og bót á velferðarþjónustu og í skólakerfinu er afar aðkallandi. Ekki hefur verið snúið af þeirri braut með fjárlagafrumvarpinu og Samfylkingin gagnrýnir harðlega þessa forgangsröðun.

Samfylkingin leggur áherslu á að breytingar verði gerðar á sköttum og gjöldum þannig að svigrúm myndist fyrir endurreisn heilbrigðiskerfisins og betri skóla, fyrir samgöngukerfið og löggæslu og fyrir þá sem reiða sig á greiðslur frá Tryggingastofnun og fyrir barnafjölskyldur. Við höfum nú í meðferð þingsins á fjárlagafrumvarpinu tækifæri til að tryggja félagslegan stöðugleika til jafns við þann efnahagslega og auka jöfnuð í samfélaginu. Það er besta leiðin til að bæta lífskjörin í landinu og stuðla að friði á vinnumarkaði. Það er ábyrg efnahagsstjórn.

Frú forseti. Fjárlagafrumvarpið byggist á tveimur þingsályktunartillögum, fjármálastefnunni og fjármálaáætluninni sem samþykktar voru í ágúst sl. Frá því að þær voru lagðar fram í lok apríl voru lög og þingsályktunartillögur samþykktar sem höfðu í för með sér fjárútlát. Í frumvarpinu er tekið tillit til laganna en ekki var til dæmis tekið tillit til afar mikilvægrar þingsályktunartillögu sem er samgönguáætlun. Breytingartillögur við samgönguáætlun voru samþykktar samhljóða á Alþingi sem jafnframt fer með fjárveitingavaldið, en kostnaður vegna þeirra ratar ekki inn í fjárlagafrumvarpið. Hæstv. fjármálaráðherra segir það í lagi þar sem að það hafi oft gerst áður að samgönguáætlun hafi ekki verið fullfjármögnuð.

Nú var það svo að breytingartillögur við samgönguáætlunina voru samþykktar samhljóða og þingmenn lögðust í mikla vinnu til að ná málamiðlunum um betri samgönguáætlun, enda veitti ekki af. En breytingartillögurnar eru ekki fjármagnaðar í fjárlagafrumvarpinu. Í frumvarpið vantar því framlög til nauðsynlegs viðhalds og uppbyggingar vega víða um land, til almenningssamgangna og hafnarframkvæmda, til rannsókna og vinnu við jarðgöng, bæði á Vestfjörðum og á Norðurlandi, og til rannsókna á Grynnslunum við Hornafjörð svo að dæmi séu tekin. Samtals vantar um 15 milljarða kr. til að samþykkt samgönguáætlunar sé fullfjármögnuð fyrir árið 2017. Úr þessu verður að bæta með breytingum á frumvarpinu, bæði á gjalda- og tekjuhlið, svo að jafnvægi haldist.

Annað afar mikilvægt hagsmunamál fyrir almenning rataði ekki heldur í frumvarpið, en það varðar greiðsluþátttöku einstaklinga í heilbrigðiskerfinu. Í nefndaráliti velferðarnefndar með frumvarpi um sjúkratryggingar, sem fjallaði um greiðsluþátttökukerfi einstaklinga í heilbrigðiskerfinu, kemur meðal annars fram að mat nefndarinnar sé að frumvarpið kalli á aukið fjármagn vegna nýs greiðsluþátttökukerfis. Heilbrigðisráðherra hafi komið á fund nefndarinnar við lokayfirferð málsins, sem samþykkt var í júní, til að ræða fjárhagshlið þess. Ráðherra greindi þar frá áformum um að greiðsluþátttaka sjúklinga verði minni en ráðgert var í drögum að reglugerð sem fylgdi frumvarpinu. Endanlegar tölur ráðist af fjárlögum næsta árs en miðað væri við að almennar hámarksgreiðslur sjúkratryggðra verði ekki hærri en 50.000 kr. á ári, en ekki 95.200 eins og sagði í drögunum. Nefndin fagnaði yfirlýsingum ráðherra og tók fram í nefndarálitinu að hún teldi sig hafa fullvissu fyrir því að auknir fjármunir kæmu með fjárlögum 2017 þannig að almennar hámarksgreiðslur sjúkratryggðra verði ekki hærri en 50.000 kr. á ári. En fjárheimildirnar eru ekki í frumvarpinu og því verður að breyta.

Í aðdraganda kosninga var heilmikið rætt um kostnaðarþátttöku sjúklinga og Samfylkingin hefur talað fyrir því að stíga eigi stór og markviss skref í átt til þess að heilbrigðisþjónustan verði með öllu gjaldfrjáls. Greiðsluþátttökukerfi það sem samþykkt var í lok vorþingsins á að taka gildi 1. febrúar á næsta ári en það nær ekki til allrar heilbrigðisþjónustu. Tannlækningar, sálfræðiþjónusta, ferðakostnaður og hjálpartæki falla til dæmis utan kerfisins. Æskilegt væri að öll heilbrigðisþjónusta og lyf falli undir eitt greiðsluþátttökukerfi. Með lögunum var sjúkra-, iðju- og talþjálfun felld undir almenna kerfið sem er til bóta. Hámarksgjaldið samkvæmt drögum að reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu er allt of hátt, einkum í ljósi þess að það nær ekki til alls heilbrigðiskostnaðar.

Ódýrri eða gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu er oft andmælt með þeim rökum að hún verði þá misnotuð og tækifæri til að stýra henni með gjaldtökunni glatist. Í því samhengi má benda á að mjög kostnaðarsamt er fyrir samfélagið ef sjúklingar draga það að leita sér lækninga og annarrar heilbrigðisþjónustu. Slík stýring tekur fyrst og fremst til þeirra sem eiga ekki fyrir heilbrigðisþjónustu. Gjaldið stýrir þeim frá því að fara til læknis fyrr en hugsanlega of seint. Þeir sem hafa næg fjárráð þurfa ekki að hugsa sig um tvisvar vegna greiðsluþátttökunnar og gjaldtakan hefur því engin áhrif á þá.

Frú forseti. Barnabætur hér á landi eru nánast orðnar eins og styrkur til fátækra og mjög ólíkar barnabótum annars staðar á Norðurlöndum. Markmiðið virðist vera að barnabætur verði eingöngu stuðningur við tekjulægstu fjölskyldurnar og er þar farið eftir tillögum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um endurskoðun barnabótakerfisins. Sjóðurinn ráðlagði stjórnvöldum að einfalda kerfið og beina greiðslum til lágtekjuheimila með hærra skerðingarhlutfalli miðað við laun. Einnig lagði sjóðurinn til að einstæðir foreldrar fengju ekki hærri greiðslur en sambýlisfólk. Þannig verði einungis greidd ein föst fjárhæð fyrir börn undir 18 ára aldri og aldrei með fleiri börnum en þremur. Slíkt fyrirkomulag þekkist hvergi annars staðar á Norðurlöndunum.

Það vekur sannarlega furðu að ríkisstjórnin hafi leitað í hugmyndir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um útfærslu barnabóta þegar beinast liggur við að líta til annarra norrænna ríkja. Þar eru bæturnar almennt ekki tekjutengdar og markmið þeirra að jafna stöðu barnafólks við þá sem ekki eru með börn á framfæri. Ótekjutengdar barnabætur draga jafnframt síður úr sjálfstæði og atvinnuþátttöku kvenna en tekjutengdar bætur. Ungar fjölskyldur á Norðurlöndunum munar um stuðninginn sem barnabætur veita og jöfnunarhlutverk þeirra er mikilvægt fyrir samfélagið allt.

Barnabótakerfi norrænu ríkjanna er fyrirmynd okkar jafnaðarmanna enda góð reynsla af þeim fyrir börn og foreldra þeirra. Það þarf að standa við bakið á íslenskum barnafjölskyldum og hækka barnabæturnar þannig að fleiri njóti þeirra. Gert er ráð fyrir að útgjöld vegna vaxtabóta fari smám saman lækkandi á komandi árum eftir því sem tekjur heimila hækki og skuldastaða batni. Fjárhæðir og frítekjumörk í kerfinu verði hækkuð árlega þannig að heildarframlög til kerfisins haldist óbreytt að raunvirði.

Samhliða skuldaleiðréttingunni svokölluðu á síðasta kjörtímabili lækkuðu stjórnvöld vaxtabætur, létu barnabætur tapa verðgildi sínu og gerðu tekjuskerðingar bótanna þar að auki grimmari. Það fólk sem áður hafði fallið innan skilgreindra vaxtabóta sá afborganir sínar lækka lítillega en vaxtabæturnar lækka miklu meira. Mörg heimili sitja því eftir með mun minna ráðstöfunarfé en áður. Hugmyndin með vaxtabótum er að auka ráðstöfunarfé þeirra sem eru með lágar og meðaltekjur og taka þátt í þeim mikla vaxtakostnaði sem lagður er á fólk með þeirri ákvörðun að halda úti minnsta sjálfstæða gjaldmiðli í heimi, íslensku krónunni. Þessu jöfnunartæki á smám saman að eyða út samkvæmt þeirri fjármálaáætlun sem samþykkt var rétt fyrir kosningar af þáverandi meiri hluta Alþingis.

Vandi á húsnæðismarkaði fer vaxandi. Ungt fólk kemst ekki úr foreldrahúsum vegna þess að verð á húsnæði og leiguverð er of hátt og lítið framboð er af íbúðum. Fólk sem vill eignast sitt eigið heimili er í vaxandi mæli í samkeppni við fyrirtæki sem veita ferðamönnum gistiþjónustu. Því er algjörlega nauðsynlegt að ráðist verði í að byggja fleiri almennar leiguíbúðir en stofnfjárframlög í fjárlagafrumvarpinu gera ráð fyrir. Lágmarkið er að byggja 1.000 almennar leiguíbúðir á ári en til þess þarf að bæta 2 milljörðum kr. í stofnfjárframlög á árinu 2017.

Frú forseti. Staða Landspítalans er með þeim hætti að ástæða er til að hafa áhyggjur af öryggi sjúklinga ef ekki verður bætt hratt úr á næstu árum. Framlögin sem lögð eru til í fjárlagafrumvarpinu til sjúkrahúsþjónustu munu ekki duga til að halda í horfinu frá því sem nú er og eru því ávísun á niðurskurð. Við það verður ekki unað, enda væri sú niðurstaða í hróplegri mótsögn við ákall almennings og kosningaloforð allra flokka. Sjúklingum hefur fjölgað vegna hækkandi aldurs þjóðarinnar en uppbygging sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva hefur ekki fylgt þeirri þróun undanfarna áratugi. Aftur á móti hefur hlutur sjúklinga í rekstri kerfisins vaxið jafnt og þétt.

Mikið hefur verið rætt um stöðu lækna á Íslandi, enda áhyggjuefni að ungir læknar snúi ekki aftur heim að loknu námi. Staða hjúkrunarfræðinga er ekki síður áhyggjuefni. Á næstu þremur árum komast u.þ.b. 800 hjúkrunarfræðingar á eftirlaunaaldur. Í staðinn útskrifast aðeins 450 hjúkrunarfræðingar úr námi og margir þeirra munu velja sér önnur störf. Fleiri stéttir, sem konur fylla að mestu, þurfa jafnframt athygli stjórnvalda, svo sem geislafræðingar, sjúkraþjálfarar og líftæknifræðingar. Það þarf að grípa til aðgerða nú þegar, efla háskólana á þessu sviði og gera ráð fyrir kostnaði sem því fylgir í fjárlögunum.

Staða framhaldsskólanna hefur verið erfið undanfarin ár. Mikil hagræðing átti sér stað á framhaldsskólastiginu á árunum fyrir hrun. Þegar krafa var gerð um aðhald eftir hrun var sáralitla fitu að skera. Vanda framhaldsskólakerfisins verður að mæta eins og hann blasir við á næstu þremur skólaárum. Staða háskólanna lítur illa út og ef ekki verða gerðar breytingar munu háskólarnir verða að fækka námsbrautum og/eða fækka nemendum. Viðvarandi fjárskortur mun hafa verulega neikvæð áhrif á vísindastarf, framþróun í atvinnusköpun og samkeppnisstöðu Íslands.

Ég minni einnig á að í 11,1 milljarðs kr. framlagi til almannatrygginga er ekki bara kerfisbreyting með sameiningu bótaflokka og breytingu á skerðingarhlutföllum. Um helmingur þessarar fjárhæðar er lögbundin hækkun vegna almennra launahækkana í landinu sem flestir aðrir landsmenn fengu greiddar frá 1. maí á þessu ári, en rata núna fyrst til hækkunar á almannatryggingum.

Frú forseti. Það er augljóst að gera þarf ráðstafanir til að fjármagna samgönguáætlunina og lægra þak í greiðsluþátttökukerfi sjúklinga ásamt því að auka framlög verulega til heilbrigðisþjónustu, skólamála og annarra innviða svo að veita megi íbúum og ferðamönnum nauðsynlega þjónustu og öryggi. Það verður ekki gert nema með því að afla frekari tekna. Alþingi hefur því ærið verk fyrir höndum á stuttum tíma til að finna lausnir sem virka, bæði á gjalda- og tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins, og taka auk þess tillit til félagslegs og efnahagslegs stöðugleika.