146. löggjafarþing — 8. fundur,  20. des. 2016.

Afbrigði um dagskrármál.

[16:02]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Herra forseti. Mig langar til þess að benda á að í þessu máli koma þrír minni hlutar fram. Þar af var tveimur minnihlutaálitum útbýtt núna á síðustu tíu mínútum áður en þingfundur hófst. Því efast ég stórlega um að neinn hafi haft nokkurn möguleika á því að lesa í gegn eða kynna sér efni þeirra minnihlutaálita. Mér þætti heppilegra ef meiri tími hefði gefist til þess að kynna sér þessi mál áður en við gengjum til atkvæðagreiðslu um afbrigði vegna þeirra.