146. löggjafarþing — 12. fundur,  22. des. 2016.

fjárlög 2017.

1. mál
[13:54]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langaði að taka undir þakkir hv. þingmanns til formannsins og nefndarinnar allrar fyrir hönd okkar hinna sem ekki áttum sæti í nefndinni. Ég veit og trúi því að þetta hafi verið erfið og mikil vinna en mér finnst mjög ánægjulegt að sjá að henni hafi verið lent á þennan hátt og við séum að afgreiða fjárlögin sameiginlega út úr þessu þingi. Ég þakka fyrir það.