151. löggjafarþing — 33. fundur,  8. des. 2020.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:34]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum; frá umhverfisráðherra um fyrirspurn á þskj. 271, um endurskoðun laga um vernd Breiðafjarðar, frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur, og fyrirspurn á þskj. 327, um urðun dýrahræja, frá Karli Gauta Hjaltasyni; frá mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn á þskj. 173, um sekta- og bótagreiðslur Ríkisútvarpsins, frá Bergþóri Ólasyni.