151. löggjafarþing — 34. fundur,  9. des. 2020.

um fundarstjórn.

[16:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Sá á kvölina sem á völina. Það er hlutverk forseta að leggja mat á þetta og að sjálfsögðu eru þeir ekki óskeikulir frekar en aðrir. En oftast gefst lítill tími til að gera það upp við sig hvort ástæða sé til að gera að einhverju leyti athugasemd, slá í bjölluna eða biðja þingmenn með vinsamlegum hætti að gæta orða sinna. Ég sé ekki að það sé neitt annað en það sem fellur undir skyldur og hlutverk forseta, að reyna að sjá til þess að fundir fari fram með góðri reglu.