151. löggjafarþing — 36. fundur,  11. des. 2020.

fjárlög 2021.

1. mál
[14:22]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér leggur meiri hluti fjárlaganefndar til að styrkja hin ýmsu söfn og setur úti um landið. Þau eru gríðarlega mikilvæg fyrir hvert byggðarlag þar sem þau eru. Langar mig til að nefna hér 5 millj. kr. tímabundið framlag til Þjóðlagaseturs sr. Bjarna Þorsteinssonar, framlag til Flugsafns Íslands, til Skaftfells og Tækniminjasafns Austurlands. Og svo eru nokkrar fleiri stofnanir þarna sem eru tíndar til. Ég vil bara fagna því. Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir viðkomandi staði.