151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

tilkynning.

[11:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti lítur svo á að samkomulag um að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp gera ráð fyrir. Þó er vonast til þess að ekki þurfi á því að halda, að þingfundur þurfi ekki að standa langt fram eftir kvöldi í kvöld, í ljósi þess að fundur stóð fram undir miðnætti í gær og aftur má búast við löngum fundi á morgun. En fyrir öryggis sakir er þetta gert í þágu þinglokanna.