151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

svör við fyrirspurnum.

[15:04]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M):

Herra forseti. Ég minntist hér á fyrir nokkrum dögum að ég hefði fengið svar frá fjármálaráðuneyti við fyrirspurn sem ég lagði fram um sölu fullnustueigna hjá Landsbankanum. Ég fékk afsvar þrátt fyrir að forseti hafi tekið þessa fyrirspurn og sent hana í viðkomandi átt. Ég mun ekki fella mig við þetta og ég vil fá það athugað af því að forseti lofaði því að hann skyldi skoða þetta mál með einhverjum hætti. Ef þetta er endanlegt svar þá mun ég að sjálfsögðu leggja fyrirspurnina fram lítt breytta á fyrsta degi þings eftir nýár. Því langar mig til að inna forseta eftir því hvort hann hefur haft uppi einhverja athugun í þessu máli og til hvers hún hefur þá leitt.