151. löggjafarþing — 39. fundur,  16. des. 2020.

tekjuskattur og staðgreiðsla skatts á fjármagnstekjur .

374. mál
[16:23]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vildi bara leiðrétta staðreyndavillu hjá hæstv. fjármálaráðherra. Hann sagði að einhverjir þingmenn eða flokkar þyldu ekki skattalækkanir. Þetta er efnislega rangt, það er sannarlega svo. Það hafa margsinnis verið lagðar til skattalækkanir hér sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur hafnað af þeirri einu ástæðu, að því er virðist, að þær koma ekki frá réttum flokki. Það er staðreynd.