151. löggjafarþing — 49. fundur,  27. jan. 2021.

störf þingsins.

[15:34]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M):

Herra forseti. Heilbrigðiskerfið á Íslandi er smátt og smátt að molna niður af mannavöldum. Nú sem aldrei fyrr er pólitískur rétttrúnaður orðinn þannig að hún er farin að ógna lífi. Það var þannig og er búið að vera, eins og við vitum, í nokkur ár að biðlistar hafa lengst eftir algengum aðgerðum en núna síðustu vikur hefur steininn tekið úr. Við heyrum af því að búið sé að færa til læknisrannsóknir, sérstaklega í þágu kvenna og sérstaklega í þágu þeirra kvenna sem bíða eftir því að komast að því hvort þær séu með krabbamein, t.d. í brjóstum eða í leghálsi. Það er búið að breyta tilhögun á þessum málum án þess að viðunandi lausn virðist hafa fundist annars staðar.

Herra forseti. Þetta er óþolandi og eins og ég segi eru þó nokkrar konur sem bíða núna með lífið að veði. Þær bíða eftir því að leghálsstrokur verði teknar upp úr pappakössum og sendar til Danmerkur í rannsóknir. Þær bíða eftir því að niðurstöður úr brjóstamyndatökum verði gaumgæfðar.

Herra forseti. Þetta er algjörlega ólíðandi. Þessu verður að linna.