151. löggjafarþing — 56. fundur,  17. feb. 2021.

störf þingsins.

[13:30]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseta minnir nú að þeir hafi gengið á milli Pontíusar og Pílatusar þarna forðum. (HKF: Nei. Hann hét Pontíus Pílatus og hann gekk á milli hans og Heródesar.) Nú, Heródesar. Þá rangminnir forseta og biðst velvirðingar á því. Heródes var vissulega á dögum þegar þetta skeði.