151. löggjafarþing — 59. fundur,  24. feb. 2021.

störf þingsins.

[13:22]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M):

Herra forseti. Mig langar að vekja athygli á frétt úr viðskiptablaði Morgunblaðsins, á mbl.is, þann 19. febrúar. Þar er sagt frá hæstaréttardómi í Bretlandi, þar sem leigubílaþjónusta Uber tapaði, og dómsorðið er þannig að bílstjórar sem keyra á vegum leigubílaþjónustunnar séu starfsmenn fyrirtækisins og hafi þar með rétt á lágmarkslaunum, hátíðarkaupi og kaffihléum. Þetta er að lokinni fimm ára baráttu manna fyrir réttlæti í þessu máli og kemur fram í greininni að í sjálfu sér geti þetta markað endalok Uber-þjónustunnar í Bretlandi, þ.e. ef Uber kemst ekki lengur upp með að halda fólk eins og þræla og sleppa við að borga öll launatengd gjöld og yfirvinnu, og hvað þetta heitir, sé grundvöllur leigubílaþjónustu Uber í Bretlandi brostinn.

Þetta segi ég vegna þess, herra forseti, að hér í þingsal hafa heyrst raddir um að þetta sé akkúrat kerfið sem við eigum að taka upp á Íslandi, að við eigum að níðast á fólki og gera það þrælum og borga síðan toll einhverjum feitum Uber-karli í útlöndum sem situr þar á sundlaugarbakka.

Ég verð að mótmæla þessu, herra forseti. Þetta er náttúrlega afturhvarf til svona námavinnslu og annars þrælahalds sem haft var uppi við í Evrópu og víðar fyrir 200–300 árum. En einnig er furðulegt að einmitt núna hefur hæstv. samgönguráðherra lagt fram frumvarp, sem er sem betur fer í nefnd og verður það vonandi sem lengst, sem einmitt á að gera það kleift að starfsemi eins og þessi nái fótfestu á Íslandi og ryðji úr vegi fólki sem hefur allt sitt á hreinu, öll öryggisatriði, og borgar sína skatta. Nú á að fara að hleypa ófögnuði eins og þessum lausum á Íslandi.