151. löggjafarþing — 64. fundur,  4. mars 2021.

höfundalög.

136. mál
[14:53]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Silja Dögg Gunnarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þarf kannski ekki að svara mörgum spurningum frá hv. þm. Kötlu Hólm Þórhildardóttur að þessu sinni en tek bara undir með þingmanninum að það er gott að við séum komin á þennan stað og ég held að þetta muni hafa mjög jákvæð áhrif víða eins og þingmaðurinn fór ágætlega yfir. Ég fagna því að við séum komin þetta langt.