151. löggjafarþing — 82. fundur,  21. apr. 2021.

tilkynning.

[13:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti vill fyrst nefna að nú í morgun fóru fram málstofur þar sem rædd voru jafnréttismál og vinnustaðaumhverfi hér á Alþingi og tóku þingmenn og starfsmenn þingflokka þátt í þeim atburðum, tvískipt sökum aðstæðna þar sem um rafrænan atburð var að ræða.

Forseti vill fagna því að það tókst að koma þessum dagskrárlið að og þakkar öllum sem þátt tóku fyrir sitt framlag.