151. löggjafarþing — 113. fundur,  12. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[13:12]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (M):

Herra forseti. Meðan þingmenn verða orðnir jafnsettir öðrum, nýliðum sem koma inn, sem er mjög gott mál og sjálfsagt, koma ráðherrabílarnir æðandi og skilja okkur eftir í rykinu. Það staðfesti hæstv. fjármálaráðherra um daginn í þessari umræðu þannig að ég þarf ekki að bæta við það sem hann sagði. Hann fullyrti að í næstu kosningabaráttu færu ráðherrar um vopnaðir skyldum sínum sem ráðherrar, að svara fyrir störf sín sem ráðherrar, hossandi í ráðherrabílunum. Ég segi nei.