154. löggjafarþing — 1. fundur,  12. sept. 2023.

afbrigði um sætaúthlutun.

[15:41]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Leita verður afbrigða frá þingsköpum, þ.e. 4. mgr. 3. gr. þingskapa, þannig að hluta megi um sæti formanna þingflokka sérstaklega og þeir hafi sæti næst inngangi í salinn og dragi innbyrðis um þessi sæti. Þessi afbrigði skoðast samþykkt ef enginn hreyfir andmælum. Samkvæmt því og samkvæmt þeim drætti sem þegar hefur farið fram hlýtur Bergþór Ólason þá sæti nr. 2, Guðmundur Ingi Kristinsson hlýtur sæti nr. 7, Hanna Katrín Friðriksson hlýtur sæti nr. 44, Hildur Sverrisdóttir hlýtur sæti nr. 22, Ingibjörg Isaksen hlýtur sæti nr. 23, Logi Einarsson hlýtur sæti 45, Orri Páll Jóhannsson hlýtur sæti 13 og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hlýtur sæti 8.

Þá hefur enn fremur orðið samkomulag um hvernig hluta skuli um sæti fyrir hv. þingmenn Ingu Sæland og Steinunni Þóru Árnadóttur þannig að þær fái sæti sem henta þeim sérstaklega. Fær Inga Sæland sæti nr. 5 og Steinunn Þóra Árnadóttir sæti nr. 57. Skoðast það samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.