154. löggjafarþing — 1. fundur,  12. sept. 2023.

tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.

[15:55]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Stefnuræða forsætisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, samanber 62. gr. þingskapa, og umræða um hana verða annað kvöld, miðvikudaginn 13. september kl. 19.40. Samkomulag er um fyrirkomulag umræðunnar. Umferðirnar verða tvær og verður ræðutími sex mínútur í hvorri umferð en forsætisráðherra hefur 12 mínútur til framsögu. Umræðunni verður útvarpað og sjónvarpað.